Fara í efni

Átt þú góss á uppboð?

01.08.2024
Fréttir Lífið í bænum

Í tilefni af 30 ára afmæli Danskra daga í ár verður efnt til uppboðs laugardaginn 17. ágúst. Ágóði uppboðsins rennur til styrktar góðra málefna. Tekið er fram að ekki er um að ræða uppboð Aksjón Lionsmanna sem naut mikilla vinsælda á árum áður, heldur hefur góður hópur hér í Hólminum ákveðið að endurvekja þennan skemmtilega viðburð í tilefni afmælisins.

Hópurinn óskar eftir hlutum á uppboðið, hafa má samband við forsprakka uppboðsins, Jón Beck í síma 865-0175

Mynd frá uppboði Lionsmanna árið 2007
Getum við bætt efni síðunnar?