Fara í efni

Áramóta- og þrettándabrenna

20.12.2019
Fréttir

Á Gamlárskvöld verður kveikt áramótabrennu kl. 20:30 við Vatnsás í landi Stykkishólms líkt og undanfarin ár. Fjölmennum og fögnum nýju ári saman og kveðjum það gamla.

Mánudaginn 6. Janúar 2020 kl. 20:00 verður kveikt í þrettándabrennu við Vatnsás í landi Stykkishólms.Við brennuna verða ýmis fyrirbæri á sveimi ásamt álfadrottningu og álfakóngi sem færa munu börnum blys. Fólk hvatt til þess að mæta með grímur og hatta og rifja upp gömlu góðu þrettándalögin.Björgunarsveitin Berserkir verður með flugeldasýningu.

Getum við bætt efni síðunnar?