Fara í efni

Almannavarnanefnd fundaði vegna Ljósufjalla

27.01.2025
Fréttir

Almannavarnanefnd Vesturlands fundaði í síðustu viku, ásamt fulltrúum Lögreglustjóraembættisins á Vesturlandi, með sérfræðingum frá Veðurstofu Íslands og Almannavörnum. Aukin jarðskjálftavirkni við Grjótavatn á Mýrum var tilefni fundarins en Grjótárvatn er innan eldstöðvarkerfis Ljósufjalla, sem nær allt frá Snæfellsnesi og í Borgarfjörð. Á fundinum fengu fulltrúar í Almannavarnarnefndar góða kynningu á stöðu mála og viðbrögð við þeim vangaveltum sem á þeim brunnu.

Það sem af er janúar mánuði hafa um 100 skjálftar yfir M1,0 að stærð mælst á svæðinu. Það er sambærilegt við fjölda skjálfta allan desember 2024 sem var mesti fjöldi skjálfta sem hefur mælst í einum mánuði á svæðinu.

Veðurstofan hefur hækkað vöktunarstig sitt í umhverfi Ljósufjalla í ljósi aukinnar virkni og vísbendinga á svæðinu um kvikuinnskot á talsverðu dýpi. Fram hefur þó komið að greiningar á gervitunglagögnum frá tímabilinu 2019 til sumarsins 2024 sýna ekki mælanlega aflögun á yfirborði.

„Almannavarnanefnd mun í kjölfar fundarins fara yfir málin með fulltrúum almannavarna og uppfæra viðbragðsáætlanir sínar þó svo að ekki sé talin hætta á ferðum að svo stöddu. Í samskiptum okkar við Veitur hefur komið fram að forðaöflun vatns- og hitaveitu í Stykkishólmi sé í jaðri sprungusveims Ljósufjallakerfisins, en vegna fjarlægðar við núverandi virknisvæðis eru litlar líkur taldar á því að áhrifa muni gæta hjá okkur. Eins og málin standa núna eru því innviðir innan okkar sveitarfélags, ekki í hættu þar sem virknin er í töluverðri fjarlægð frá okkur. Hins vegar er ekki hægt að útiloka að hugsanleg neikvæð áhrif á innviði í nánd við núverandi virknisvæðinu, líkt og fjarskipti, raforku eða samgöngur, gæti haft áhrif á íbúa hér – þetta eru óvissuþættir sem erfitt er að úttala sig um en mikilvægt að hafa í huga í tengslum við uppbyggingu innviða á öllu svæðinu til að mæta hugsanlegum áhættuþáttum, sérstaklega þegar horft er til lengri tíma, þó sérfræðingar telji ekki ástæðu til að hafa miklar áhyggjur af stöðunni eins og er. - segir Jakob Björgvin, bæjarstjóri, sem situr í almannavarnanefnd.

Stefnt er að því að halda upplýsingafund með aðkomu náttúruvársérfræðinga og almannavarna um miðjan febrúar.

Getum við bætt efni síðunnar?