Fara í efni

Aðventa á Snæfellsnesi

19.11.2020
Fréttir

Innan skamms fer aðventan í hönd og þetta skrýtna ár breytir engu um það. Aðventa er tími undirbúnings, huggulegheita og samveru. Styttum okkur stundir heima á Snæfellsnesi, gefum Snæfellsnes í jólagjöf og styðjum við fólkið á bak við fyrirtækin og þjónustuaðilana á Snæfellsnesi og finnum gjafir hér heima í ár.

Fjölmargt verður um að vera á aðventunni og tækifæri til notalegra stunda víða að finna. Svæðisgarðurinn Snæfellsnes leggur sitt af mörkum á aðventunni í ár með því að gefa út Aðventuhandbók sem dreift verður inn á öll heimili á Snæfellsnesi.

Samhliða verður efni handbókarinnar aðgengilegt rafrænt á www.adventa.snaefellsnes.is  

Allir þjónustu- og verslunaraðilar á Snæfellsnesi eru birtir í handbókinni þeim að kostnaðarlausu auk þess sem allir viðburðir á Snæfellsnesi eru birtir í aðventudagatali í bókinni. Hugmyndir að skemmtilegri afþreyingu má finna og ábendingar um áhugavert efni sem finna má á netinu eða í nánasta umhverfi.

Umsjón með þessu verkefni hafa auk Svæðisgarðsins; Anok margmiðlun ehf. og markaðs- og upplýsingafulltrúar Snæfellsbæjar, Grundarfjarðarbæjar og Stykkishólmsbæjar.

Smelltu hér fyrir skráningu viðburða - Ókeypis

Smelltu hér fyrir skráning verslunar- og þjónustuaðila - Ókeypis

Aðventuvefur Svæðisgarðsins:
adventa.snaefellsnes.is

Netfang:
adventa20@gmail.com 

Getum við bætt efni síðunnar?