Umsókn um framkvæmdaheimild fyrir borun á hitastuðulsholum í landi Vigraholts
Málsnúmer 2408040
Vakta málsnúmerBæjarstjórn - 27. fundur - 29.08.2024
Lögð fram umsókn um framkvæmdarheimild frá Vigraholti ehf. fyrir borun á hitastigsholum í landi Vigraholts. Framkvæmdin felst í að bora tvær til þrjár grunnar, 60-80 metra djúpar tilraunarholur/hitastuðulsholur í landi Vigraholts. Með umsókninni fylgdi loftmynd þar sem staðsetning tilraunaborholanna er sýnd og stutt grein gerð fyrir framkvæmdinni.
Bæjarstjóri leggur til við bæjarstjórn að samþykkja, í samræmi við fyrirliggjandi gögn, að umrædd framkvæmd sé ekki háð framkvæmdaleyfi, sbr. 4. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012, með þeim tilmælum að öllu raski sé haldið í lágmarki og öll ummerki eftir framkvæmdina verði afmáð ásamt því að áréttað sé að ef til frekari vinnslu við borholur kemur getur sú framkvæmd verið háðar framkvæmdaleyfi og verði breyting á framkvæmd skal afla samþykkis við breytingunni.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna.