Birkilundur 47 - fyrirspurn um deiliskipulag
Málsnúmer 2308007
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 13. fundur - 16.08.2023
Stefán S. Skúlason og Herdís Þórisdóttir, eigendur Birkilunds 47, íbúðarhúsalóðar í Sauraskógi, óska eftir að sveitarfélagið greiði hlut þeirra í kostnaði við gerð deiliskipulags sem nýstofnað félag lóðarhafa í Birkilundi vinnur nú að og tekur til bæði frístundahúsalóða og íbúðarlóða.
Deiliskipulagstillagan er unnin á grunni deiliskipulagstillögu frá 2006 (Landlínur) sem var árituð af þáverandi oddvita og skipulags- og byggingarfulltrúa en tók aldrei lögformlega gildi. Tillagan frá 2006 og önnur stimpluð tillaga frá 2003 (Teiknistofunni Eik), hafa í einhverjum tilvikum fylgt þinglýstum kaupsamningum og lýsa lóðarhafar því yfir að það hafi komið þeim á óvart að deiliskipulagið hafi lögformlega ekki tekið gildi.
Skv. Aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2024 er Birkilundur 47 á svæði sem skilgreint er sem íbúðarbyggð (9,6 ha). Samkvæmt deiliskipulagstillögunni frá 2006 eru 13 íbúðarhúsalóðir á skipulagssvæðinu og eru 11 þeirra byggðar.

Vísað er til afgreiðslu skipulagnefndar vegna máls nr. 2209002 "Birkilundur - Nýtt deiliskipulag". Sjá lið 10.
Bæjarráð - 13. fundur - 21.08.2023
Lagt fram erindi Stefáns S. Skúlasonar og Herdísar Þórisdóttur, eigenda Birkilunds 47 íbúðarhúsalóðar í Sauraskógi sem óska eftir að sveitarfélagið greiði hlut þeirra í kostnaði við gerð deiliskipulags sem nýstofnað félag lóðarhafa í Birkilundi vinnur nú að og tekur til bæði frístundahúsalóða og íbúðarlóða.
Skipulagsnefnd vísaði, á 13. fundi sínum, til afgreiðslu skipulagnefndar vegna máls nr. 2209002 "Birkilundur - Nýtt deiliskipulag".

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar með vísan við afgreiðluslið 16 (Birkilundur - Nýtt deiliskipulag - málsnr. 2209002).