Beiðni um tilnefningu fulltrúa í Breiðafjarðarnefnd
Málsnúmer 2105019
Vakta málsnúmerBæjarstjórn - 399. fundur - 12.05.2021
Lagt fram bréf umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, dags. 28. apríl sl., þar sem óskað er eftir tilnefningu eins fulltrúa fjögurra sveitarfélaga á Snæfellsnesi í Breiðafjarðarnefnd.
Samkvæmt lögum um vernd Breiðafjarðar nr. 54/1995 er Breiðafjarðarnefnd ráðherra til ráðgjafar um allt það er lýtur að framkvæmd laganna. Í nefndinni eiga sæti sjö menn, sem ráðherra skipar til fjögurra ára í senn. Í lögunum segir að sveitarfélög sem liggja að Breiðafirði tilnefni fjóra fulltrúa á þann hátt sem ráðherra ákveður í reglugerð. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Reglugerð hefur ekki verið sett, en sveitarfélögin fjögur á norðanverðu Snæfellsnesi hafa sameinast um einn fulltrúa og annan til vara.

Samþykkt samhljóða.