Fara í efni

Upptökur í Stykkishólmi

02.09.2021
Fréttir

Næstkomandi sunnudag, 5. september, munu aðilar frá Truenorth taka upp myndbandsefni sem notað verður í æfingamyndband. Um er að ræða æfingamyndband fyrir göngu og hjólaæfingar og verður m.a. tekið upp myndband af reiðhjólakappa sem hjólar um bæinn.

Upptökur fara fram á sunnudeginum á hafnarsvæði, Aðalgötu og Skólastíg. Eru vegfarendur beðnir að sýna framleiðsluaðilum tillitsemi en gera má ráð fyrir að bílaumferð verði beint um hjáleiðir eða vegfarendur beðnir að hinkra stundarkorn á meðan upptökuvélar ganga.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Getum við bætt efni síðunnar?