Fara í efni

Ungmennaþing Vesturlands haldið dagana 12.-13. mars

04.03.2022
Fréttir

Dagana 12. ? 13. mars 2022 fer fram ungmennaþing Vesturlands á Lýsuhóli. Um er að ræða samstarfsverkefni sveitarfélaga á Vesturlandi, ungmennaráðs Vesturlands og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV).
Markmið með þinginu er að:

  •  fá ungt fólk af öllu Vesturlandi saman
  • stuðla að uppbyggingu í þágu ungs fólks á öllu Vesturlandi
  • skapa vettvang fyrir samtal ungmenna við frambjóðendur sveitarstjórnarkosninganna sem fara fram 14. maí nk.
  • kynnast öðrum ungmennum, njóta og hafa gaman

Þátttakendur munu ræða stöðu ungmenna á Vesturlandi frá ýmsum hliðum auk þess sem boðið verður upp á kynningar sem tengjast málefnum ungs fólks og ungmennaráða.
Þingið er ætlað ungu fólki á aldrinum 14 ? 25 ára. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 40 manns og er lágmarkfjöldi tryggður frá hverju sveitarfélagi. Þátttakendum yngri en 18 ára þarf að fylgja fullorðinn einstaklingur.
Þátttaka er gjaldfrjáls og innifalið í þátttöku er gisting, matur, vinnugögn og annað tilheyrandi. Ferðakostnaður er á höndum sveitarfélaganna sjálfra.
Skráningarfrestur er til og með 6. mars. Hægt að skrá sig á ungmennaþingið hér.
Ef það vakna upp spurningar er einnig hægt að hafa samband við Ívar Orra Kristjánsson, starfsmann ungmennaráðs Vesturlands, á netfanginu ivar.orri@akraneskaupstadur.is.

 

Getum við bætt efni síðunnar?