Takmörkun á skólastarfi frá 3. nóvember
Haustfrí er í Grunnskólanum í Stykkishólmi í dag og á morgun, 2. og 3. nóvember. Þriðjdaginn 3. nóvember tekur gildi ný reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólastarfi vegna hertra sóttvarnaraðgerða.
Reglugerðin tekur til leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, framhaldsskóla, framhaldsfræðslu og háskóla, en einnig til annarrar starfsemi, svo sem frístundaheimila, félagsmiðstöðva og íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfs.
Á meðal helstu aðgerða eru:
Leikskólar
- Ekki skulu vera fleiri en 50 leikskólabörn í hverju rými. Leikskólabörn eru undanþegin 2 metra nálægðartakmörkun. Starfsfólk skal halda 2 metra nálægðartakmörkunum sín á milli og sé það ekki hægt skal starfsfólk nota andlitsgrímur. Skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna á leikskólaaldri er óheimilt, jafnt innan og utan leikskóla.
Grunnskólar
- Fyrsta skólastig, þ.e. 1.?4. bekkur: Nemendur eru undanþegnir 2 metra nálægðartakmörkun og þurfa ekki að nota andlitsgrímur. Alls mega 50 nemendur vera í sama rými. Sömu reglur gilda um frístundaheimili fyrir nemendur í 1.?4. bekk.
- 5.?10. bekkur: Nemendur mega að hámarki vera 25 í hverju rými. Um þá gilda 2 metra nálægðartakmörk og ef ekki er hægt að uppfylla þau skulu nemendurnir nota grímu. Starfsfólk skal jafnframt halda 2 metra regluna og nota grímu sé það ekki mögulegt.
- Starfsfólk grunnskóla: Ekki skulu vera fleiri en 10 starfsmenn í hverju rými en starfsmönnum er heimilt að fara á milli hópa. Starfsmenn skulu virða 2 metra regluna sín á milli og gagnvart nemendum í 5.?10. bekk. Sé það ekki hægt skulu þeir bera grímur.
- Fjöldamörk og blöndun hópa: Halda skal sömu hópaskiptingu nemenda í grunnskólastarfi og á frístundaheimilum þannig að ekki verði blöndun milli nemendahópa. Í sameiginlegum rýmum skóla er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkum og reglu um blöndun hópa, að því gefnu að nemendur í 5.?10. bekk og starfsfólk noti grímu.
- Skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf, þ.m.t. starf félagsmiðstöðva, barna á grunnskólaaldri er óheimilt.
Fyrsta ár á framhaldsskólastigi
- Í skylduáföngum á framhaldsskólastigi sem teknir eru á fyrsta námsári er heimilt að hafa allt að 25 einstaklinga í rými, að því gefnu að hægt sé að halda 2 metra nálægðartakmörkum.
Framhaldsskólastig, háskólar og tónlistarskólar Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að fylgjast vel með tilkynningum frá skólum, sem og sóttvarnaryfirvöldum. Þá eru íbúar enn á ný minntir á að huga vel að persónubundnum smitvörnum.