Sveitarstjórnarkosningar 2022
Sveitarstjórnarkosningar í Helgafellssveit og Stykkishólmsbæ fara fram þann 14. maí 2022.
Frestur til að skila framboðslistum til yfirkjörstjórnar er til kl. 12, föstudaginn 8. apríl n.k.
Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðslistum í Setrinu við Skólastíg 11 á tímabilinu 10 ? 12 þann dag. Nánari upplýsingar um hvernig ganga beri frá framboðslista er að finna á vefslóðinni: http://www.kosningar.is Vert er að minna á að utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst hjá sýslumannnum á Vesturlandi, Stykkishólmi, eigi síðar en 15. apríl n.k. Stykkishólmi, 3. apríl 2022