Fara í efni

Sveitarfélögin á Snæfellsnesi fagna EarthCheck umhverfisvottun 13. árið í röð

19.05.2021
Fréttir

Sveitarfélögin á Snæfellsnesi fagna nú EarthCheck umhverfisvottun 13. árið í röð ? til hamingju Snæfellingar!

Með samtakamætti á Snæfellsnesi fyrir nær tveimur áratugum hófu sveitarfélögin á Snæfellsnesi ferli til að fá umhverfisvottun, eitt af þeim skrefum sem hafa verið tekin til að standa vörð um náttúru og samfélag á svæðinu. Ferlið tók nokkur ár, skipulagsbreytingar og aðlaganir í takt við breyttan heim, og á endanum fengum við umhverfisvottun EarthCheck árið 2008. Vottunin er ekki árangurinn í sjálfu sér, heldur staðfesting á árangri og framförum. 
Við höfum í samvinnu við samfélagið reynt að minnka einnota og barist fyrir margnota, við höfum hreinsað strendur, sveitir og bæi í áraraðir, safnað tugi tonna af rusli úr náttúrunni og komið á fót skráningarkerfi sem gefur miklu betra yfirlit um auðlindanotkun á vegum sveitarfélaganna. Börnin okkar hafa mun greiðari aðgang að upplýsingum um loftslagsbreytingar og umhverfismál í skólum og félagsstarfi en áður. Aðgengi að nokkrum viðkvæmum og vinsælum stöðum á Snæfellsnesi hefur verið bætt með hag fólks og verndun náttúrunnar að leiðarljósi, og sú vinna heldur áfram. En við stoppum ekki hér því verkefninu lýkur aldrei.

Guðrún Magnea, verkefnastjóri Umhverfisvottunar Snæfellsness, ritaði af þessu tilefni pistilinn ?Enginn getur gert allt- en allir þurfa að gera eitthvað?  á vefsíðu Umhverfisvottunar Snæfellsness. Pistilinn má lesa hér.

 
Getum við bætt efni síðunnar?