Sumarlestur Amtsbókasafnsins er hafinn
Árlegur sumarlestur Amtsbókasafnins er farinn af stað og verður í allt sumar. Í ár verður boðið upp á sumarlestur fyrir börn og fullorðna. Ungir lesendur geta bætt einum miða í bókaorminn í barnadeildinni fyrir hverja bók sem þeir lesa. Í hverjum mánuði er dreginn út einn heppinn lesandi sem fær verðlaun. Í lok sumars fá allir sem taka þátt í sumarlestrinum glaðningin auk þess sem sá eða sú sem á flesta miða í orminum fær vegleg verðlaun. Sumarlesturinn fyrir fullorðna er til gamans gerður. Búið er að velja 7 mismunandi þemu og bækur sem falla undir þau. Listinn getur gefið góðar hugmyndir að því hvað hægt er að lesa næst. Lesendur geta líka skorað á sig að klára heilan flokk í sumar eða að lesa eina bók úr hverjum flokki. Þriðjudagar: 14:00 - 17:00 Safnið verður lokað dagana 10. til 13. ágúst.
Afgreiðslutími safnsins verður óbreyttur í sumar.
Miðvikudagar: 14:00 - 17:00
Fimmtudagar: 14:00 - 17:00
Föstudagar: 14:00 - 17:00