Fara í efni

Staða hafnarvarðar við Stykkishólmshöfn er laus til umsóknar

24.03.2022
Fréttir

STYKKISHÓLMSBÆR
Stykkishólmur hefur á síðustu árum orðið að einum vinsælasta áfanga- og áningarstað landsins. Þar kemur margt til, ef til vill vegur þar þungt metnaður bæjarbúa fyrir að varðveita umhverfi sitt og sögu svo komandi kynslóðir fái notið þeirra á sama hátt og við gerum nú. Sú hugsun endurspeglast hvað best í miðbæ Stykkishólms sem óhætt er að vísa til sem safns gamalla húsa. Stykkishólmsbær fékk Skipulagsverðlaunin 2008, sem veitt eru af Skipulagsfræðifélagi Íslands, fyrir deiliskipulag miðbæjar, stefnu og framfylgd hennar og eru bæjarbúar ákaflega stoltir og þakklátir fyrir þá viðurkenningu.

HAFNARVÖRÐUR
Staða hafnarvarðar við Stykkishólmshöfn er laus til umsóknar. Um er að ræða fullt starf auk bakvakta.
Starfið felur í sér hafnsögu skipa um hafnarsvæðið, almenna starfssemi hafnarinnar og þjónustu við viðskiptavini hennar. Hafnarvörður vinnur að vigtun sjávarafla og skráningu upplýsinga um löndun ásamt skráningu og skýrslugerðum sem við kemur allri umferð um hafnarsvæðið og hafsögu. Gerir reikninga og sendir út til viðskiptavina. Sinnir viðhaldi og framkvæmdum á hafnarbökkum og hafnarmannvirkjum eftir þörfum.
Hluti af starfinu er einnig m.a. öryggiseftirlit á hafnarsvæðum og vinna að umhverfis- og öryggismálum og mengunarvörnum. Hafnarvörður sinnir jafnframt ýmsum verkefnum, s.s. raða skipum í höfn, binda skip við bryggju og afgreiða vatn og rafmagn til skipa.
 
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Reynsla af skipstjórn
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
  • Hæfni til að starfa sjálfstætt, skipulagshæfileikar og nákvæmni við skráningu gagna
  • Ríkuleg þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhersla lögð á vandvirkni og nákvæmni í öllum störfum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Skipsstjórnarréttindi er kostur
  • Önnur menntun sem nýtist í starfi kostur
  • Gilt ökuskírteini
  • Löggilding vigtarmanns er kostur
  • Hafnsöguréttindi kostur
  • Réttindi til hafnaverndar kostur
  • Réttindi sem verndarfulltrúi hafnar kostur.

Laun taka mið af starfsmati og kjarasamningum viðkomandi BSRB/ASÍ félaga við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 28. mars 2022.

Upplýsingar um starfið veitir Jakob Björgvin bæjarstjóri í síma 433-8100, jakob@stykkisholmur.is

 

 

Getum við bætt efni síðunnar?