Fara í efni

Sjósundsskýli reist í Stykkishólmi - Bætt aðstaða til sjósunds í Móvík

21.04.2021
Fréttir

Undanfarið hafa starfsmenn Þjónustumiðstöðvar Stykkishólmsbæjar staðið í ströngu við að bæta aðstöðu til sjósundsiðkunar í Móvík, en þar hefur verið reist tímabundið skýli fyrir sjósundskappa til að hafa fataskipti og lagður hefur verið stigi með handriði niður í fjöruna. 
Snemmsumars 2020 barst Stykkishólmsbæ ábending frá íbúa þar sem athygli var vakin á því að hópur fólks hér í bæ stundaði sjósund af miklu kappi. Hópurinn kom fyrst saman í ágúst 2019 og kallar sig Sjósundsfélag Stykkishólms. Hópurinn hefur að öllu jöfnu haldið til sjós úr Móvík en einnig úr Nesvoginum, en samkvæmt skýrslu um hreinleika sjávar umhverfis Stykkishólm er ljóst að Móvíkin henti einkar vel til sjósunds. 
Móvíkin er skjólsæl en eftir þungan vetur fylltist víkin af þangi og grjóti sem gerði sjósundsfélögum erfitt fyrir. Í maí 2020 var óskað eftir því að Stykkishólmsbær kæmi til aðstoðar við hreinsun fjörunnar af þangi og grjóti og sú beiðni lögð fyrir bæjarráð, sem svo óskaði eftir fundi með Sjósundsfélagi Stykkishólms. Í ágúst 2020 mættu fulltrúar sjósundsfélagsins á 617. fund bæjarráðs Stykkishólmsbæjar þar sem þær gerðu grein fyrir starfsemi félagsins og óskum sínum um lagfæringar á aðstöðu í Móvík. En hópurinn gekk strax um með stóra drauma hvað varðar aðstöðu, lítið hús við Móvík svo hægt væri að klæða sig í skjóli og sauna til að ylja sér eftir sundsprettinn.
Skýlisins hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu frá því að bæjarstarfsmenn hófu vinnuna og mun vonandi nýtast vel.

Vakin er athygli á að um er að ræða tímabundna ráðstöfun sem verður endurskoðuð þegar opnað verður á úthlutun lóða í Víkurhverfinu, en ekki er útilokað að slík aðstaða og íbúabyggð geti farið vel saman sem myndi leiða af sér skipulagsbreytingar á svæðinu. 

 

 

Getum við bætt efni síðunnar?