Samtal og samstarf í ferðamálum á Vesturlandi
Starfsfólk Markaðsstofu Vesturlands leggur land undir fót og heimsækir svæðin á næstu dögum. Þau verða í Ráðhúsi Stykkishólms fimmtudaginn 4. mars kl 17:00. Kynnt verður Áfangastaðaáætlun Vesturlands og áhersluverkefni ferðamála 2021-2023.
Allir hagaðilar og aðrir áhugasamir velkomnir að mæta og eiga samtal um samstarf og samvinnu.