Fara í efni

Sameiningartillaga samþykkt með afgerandi hætti

28.03.2022
Fréttir

Íbúar í Helgafellssveit og Stykkishólmsbæ samþykktu sameiningartillöguna með afgerandi hætti laugardaginn 26. mars. Tæplega 92% íbúa í Stykkishólmi samþykktu tillöguna og tæplega 79% íbúa í Helgafellssveit. Úrslit kosninga voru birt á vefsíðu verkefnisins strax að lokinni talningu. Þar má einnig sjá tölfræðilegar upplýsingar um kosninguna.
Í þessari viku hefst undirbúningur og innleiðing sameiningartillögunnar, en íbúar munu kjósa nýja sveitarstjórn í sameinað sveitarfélag þann 14. maí næstkomandi. 

 

Getum við bætt efni síðunnar?