Fara í efni

Rennibrautin opin á ný

28.06.2021
Fréttir

Rennibrautin í sundlaug Stykkishólms er nú opin á ný. Síðastliðinn laugardag var opnað fyrir rennibrautina eftir að viðgerðum lauk en brautin hefur staðið ónotuð í þónokkurn tíma. Síðasta vor var búið að ganga frá samningum við menn utan landsteinanna sem hugðust koma til að annast viðgerðina en þegar heimsfaraldur brast á breyttust þær áætlanir. Sökum þessa drógust viðgerðir á langinn en að lokum fannst maður hérlendis sem hafði þá kunnáttu sem til þurfti að gera við brautina og var hann ráðinn í verkið.

Eflaust hafa margir ungir Hólmarar beðið lengi eftir að komast aftur í rennibrautina en sú bið er nú á enda og sundlaugargestum óhætt að taka gleði sína á ný og njóta þess að þeysast niður rennibrautina með bros á vör.

 
Getum við bætt efni síðunnar?