Öskudagurinn í Stykkishólmi
Upp er runninn Öskudagur, sem jafnan er mikið tilhlökkunarefni barna víðsvegar um landið. Dagurinn verður með hefðbundnu sniði í Stykkishólmi. Skertur skóladagur er í grunnskólanum og voru börn hvött til að mæta í búningum eða með andlitsmálningu í skólann. Skóladeginum lýkur sem hér segir: ÖSKUDAGSGANGA Öskudagsgangan verður á sínum stað eins og vant er. Gengið verður frá Tónlistarskólanum kl. 14:00 og munu þeir Magnús Bæringsson, Kristjón Daðason og Hafþór Guðmundsson leiða gönguna. Að göngu lokinni tekur við öskudagsskemmtun í íþróttamiðstöðinni fyrir börn frá leikskóla upp í 10. bekk. Tímanum verður skipt svona: Aðgangseyrir að skemmtuninni er 500 kr. á barn en þó að hámarki 1000 kr. á heimili.