Fara í efni

Opinn samráðsfundur um stöðu samgöngumála

01.03.2021
Fréttir

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi bjóða til rafræns samráðsfundar um stöðu samgöngumála á Vesturlandi miðvikudaginn 3. mars kl. 15:00-17:00.

Á fundinum verður fjallað um samgöngumál í landshlutanum, helstu áskoranir og tækifæri til framfara. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með erindum og umræðum í minni hópum.

Fundurinn er öllum opinn en gestir eru beðnir um að skrá þátttöku á skráningarsíðu fundarins. Allir sem skrá sig fá hlekk á veffundinn.

Skráning hér

Fundurinn er hluti af fundaröð um allt land í tilefni af undirbúningi grænbókar um stöðu samgöngumála. Sjá nánar á vef um grænbók um samgöngumál.

Dagskrá:

15:00?16:00
Erindi

  • Lilja B. Ágústsdóttir, formaður SSV og forseti sveitarstjórnar í Borgarbyggð
  • Gísli Gíslason, fv. hafnarstjóri Faxaflóahafna, Akranesi
  • Sigríður Huld Skúladóttir, sveitarstjórnarfulltrúi Dalabyggð
  • Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi

16:00?17:00
Umræður

Fundargestum er skipt upp í umræðuhópa sem fjalla um einstök viðfangsefni. Hver hópur kynnir niðurstöður sínar stuttlega í lok fundar. Fundarstjóri er Gissur Jónsson, varaformaður samgönguráð

Hlekkur á viðburð á facebook

Mynd Eyþór Benediktsson
Getum við bætt efni síðunnar?