Fara í efni

Opinn íbúafundur: Leggjum línurnar fyrir framtíð Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls

18.02.2021
Fréttir

Leggjum línurnar fyrir framtíð Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls

Undanfarið hafa fulltrúar Umhverfisstofnunar, Snæfellsbæjar, Ferðamálasamtaka Snæfellsness, Minjastofnunar Íslands og Náttúrustofu Vesturlands unnið að endurskoðun á stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Þjóðgarðinn Snæfellsjökul. Opinn rafrænn íbúafundur verður haldinn miðvikudaginn 24. febrúar kl. 17:30-19:30 í gegnum Teams. Fólk er beðið um að skrá sig á fundinn á vef Umhverfisstofnunar í síðasta lagi þriðjudaginn 23. febrúar. 

Á fundinum verður vinna við áætlunina kynnt og síðan munu fundarmenn geta tekið þátt í hópavinnu og lagt sitt af mörkum við stefnumótun Þjóðgarðsins. Á næstunni verða haldnir minni fundir með ýmsum samráðsaðilum. Fólk er hvatt til að mæta á skjáinn og taka þátt í umræðunni.

 
Getum við bætt efni síðunnar?