Opinn fundur: Vesturland í sókn ? Ný atvinnutækifæri á Vesturlandi
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa fyrir opnum fundi á TEAMS miðvikudaginn 17. febrúar og hefst fundurinn kl. 09:00. Allir velkomnir
Á fundinum mun Hafsteinn Helgason verkfræðingur og ráðgjafi hjá EFLU fara yfir ýmis tækifæri sem eru að verða til í atvinnulífinu. Hafsteinn hefur um árabil komið að ýmsum viðskiptaþróunarverkefnum fyrir hönd fyrirtækisins, en hann var sviðsstjóri viðskiptaþróunar hjá EFLU. Hafsteinn hefur leitt verkefni um iðnþróun, staðarval fyrirtækja, innviðauppbyggingu, orku- og vetnismál svo fátt eitt sé nefnt. Þá hefur hann verið kennari við verkfræðideild Háskóla Íslands um langt skeið.
SSV