Fara í efni

Opið fyrir umsóknir í uppbyggingarsjóð Vesturlands

11.04.2022
Fréttir

Uppbyggingarsjóður Vesturlands auglýsir eftir umsóknum um styrki.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja annars vegar menningarverkefni og hins vegar atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnishæfur og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands.
Að þessu sinni verða veittir styrkir til atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna.
Frestur til að skila inn umsóknum er til og með 10. maí 2022.
Aðstoð við umsóknir veita eftirfarandi aðilar.
Ólafur Sveinsson olisv@ssv.is 892-3208
Ólöf Guðmundsdóttir olof@ssv.is 898-0247
Helga Guðjónsdóttir helga@ssv.is 895-6707
Á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi er rafræn umsóknargátt. Þar má einnig finna nánari upplýsingar, reglur og viðmið varðandi styrkveitingar.

Getum við bætt efni síðunnar?