Fara í efni

Nýr upplýsingakassi á hafnarsvæðinu

24.06.2021
Fréttir

Nýr upplýsingakassi hefur verið settur upp á hafnarsvæðinu í Stykkishólmi. Um er að ræða kassa þar sem hengdar verða upp helstu fréttir og tilkynningar frá Stykkishólmsbæ. Kassinn er sérstaklega hugsaður til að koma upplýsingum til þeirra sem ekki nota tölvur en nýtist einnig ferðamönnum og gestum bæjarins vel, allar fréttir og tilkynningar sem settar eru í kassann má einnig finna á stykkisholmur.is.

Kassinn er staðsetur á hafnarsvæðinu gengt vigtaskúrnum og því vel hægt að keyra upp að honum til að sækja sér nýjustu fréttir.

Getum við bætt efni síðunnar?