Malbikunarframkvæmdum lokið
Umfangsmiklar malbikunarframkvæmdir hafa staðið yfir í Stykkishólmi síðustu daga þó malbikunarflokkurinn hafi ekki verið bæjarbúum jafn sýnilegur og þegar Aðalgatan var malbikuð fyrr í þessum mánuði. Framkvæmdum lauk í gær, mánudagskvöld, en meðal þess sem malbikað var í þessum áfanga var Sæmudarreitur.
Eflaust tóku mörg leikskólabörn og foreldrar þeirra eftir nýlögðu malbikinu á stíg sem tengir Ásklif við Búðanes sem er mikið notaður m.a. af börnum á leið í leikskóla. Einnig má gera ráð fyrir að leikglöð börn bæjarins hafi tekið eftir malbikuðum stíg á leikvellinum á Skúlagötu, en þar var einnig malbikuð tenging leikvallarins við Austurgötu þar sem áður var gönguleið. Hér að neðan má sjá myndir af þeim svæðum sem voru malbikuð sl. daga.