Fara í efni

Malbikun í fullum gangi

16.08.2021
Fréttir

Lokið var við malbikun á hafnarsvæði og Súgandiseyjargötu í gær, sunnudag, og var undirlag lagt á Hafnargötu og Aðalgötu í framhaldinu þar sem unnið er nú að malbikun. Lokað er fyrir umferð þar sem framkvæmdir standa yfir. Búið er að opna fyrir umferð á Súgandiseyjargötu og hafnarsvæði.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda, gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki á miðvikudag.

Getum við bætt efni síðunnar?