Fara í efni

Lýsing fyrir breytingu á Aðalskipulagi Stykkishólmsbæjar 2002 ? 2022 um gististaði í íbúðarbyggð

03.03.2021
Fréttir

Lýsing fyrir breytingu á Aðalskipulagi Stykkishólmsbæjar 2002 ? 2022 um gististaði í íbúðarbyggð.

Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hefur samþykkt að auglýsa skipulagslýsingu fyrir aðalskipulagsbreytingu um stefnu og skilmála um gististaði á íbúðarsvæðum í Stykkishólmsbæ. Lýsingin er sett fram í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga með vísan í 36. gr. laganna.

Skipulagslýsingin er birt á vef Stykkishólmsbæjar og liggur frammi á bæjarskrifstofu til og með 31. mars 2021, þannig að íbúar og aðrir hagsmunaaðilar geti kynnt sér hana og sent inn ábendingar sem varða tillögugerðina. Lýsingin er jafnframt send Skipulagsstofnun og öðrum aðilum til umsagnar eins og skipulagslög gera ráð fyrir. 

Ábendingar varðandi tillögugerðina skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa til og með 31. mars 2021 að Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi eða á netfangið: skipulag@stykkisholmur.is.

Lýsinguna má nálgast hér

Skipulagsfulltrúi Stykkishólmsbæjar.

 
Getum við bætt efni síðunnar?