Fara í efni

Lóðin Áskinn 6 laus til umsóknar

18.12.2020
Fréttir

Lóðin Áskinn 6 er auglýst til úthlutunar í samræmi við reglur Stykkishólmsbæjar um úthlutun á lóðum fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði og bætist þar með á úthlutunarlista yfir lausar lóðir í Stykkishólmi. Umsóknarfrestur er 10 dagar, frá 18. desember til og með 28. desember. Á lóðinni er heimilt að byggja einbýlishús, parhús eða þríbýli á einni hæð. Þar sem ekki er til gildandi deiliskipulag af svæðinu ber að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn samkvæmt 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsfulltrúi Stykkishólmsbæjar veitir allar nánari upplýsingar í síma 433-8100 eða í Ráðhúsi Stykkishólmsbæjar.

Til upplýsinga má jafnframt sjá á þjónustusíðu umhverfis-, skipulags- og mannvirkjamála yfirlit yfir aðrar lausar lóðir í Stykkishólmi.

Getum við bætt efni síðunnar?