Fara í efni

Lista- og menningarsjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki

09.12.2021
Fréttir

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í lista- og menningarsjóð Stykkishólmsbæjar. Samkvæmt reglum Stykkishólmsbæjar um styrkveitingar er hlutverk sjóðsins meðal annars að:

  • Styðja og styrkja lista og menningarstarf í Stykkishólmi og hvetja til nýsköpunar á sviði lista og menningar er tengjast Stykkishólmi.
  • Styðja við útgáfustarfsemi er varðar sögu, menningu og atvinnuhætti bæjarins.
  • Styðja við varðveislu menningarminja.

Umsóknum skal skilað á skrifstofu Stykkishólmsbæjar, eða netfang: stykkisholmur@stykkisholmur.is, fyrir 4. janúar nk. og tekur stjórn lista- og menningarsjóðs ákvörðun 6. janúar 2022.
Umsóknir skulu vera skriflegar og undirritaðar, umsóknir sem berast í tölvupósti jafngilda skriflegri umsókn.

Hverri umsókn skal fylgja greinagerð um starfsemi viðkomandi félags og/eða það verkefni sem vinna skal.

Fyrir hönd lista- og menningarnefndar,
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir
hrafnhildur@stykkisholmur.is

Getum við bætt efni síðunnar?