Fara í efni

Lífshlaupið hefst 2. febrúar

31.01.2022
Fréttir

Lífshlaupið 2022 hefst á miðvikudaginn, 2. febrúar.

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum Embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir ættu að stunda miðlungserfiða hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega.
Landsmenn allir eru hvattir til þess að taka þátt í Lífshlaupinu og skapa skemmtilega stemningu og auka félagsandann á vinnustaðnum eða í skólanum. Það er gaman að geta fylgst með sinni hreyfingu og jafnframt tekið þátt í þessari skemmtilegu landskeppni.
Nú sem aldrei fyrr er mikilvægt að huga vel að bæði andlegri og líkamlegri heilsu.
Lífshlaupið skiptist í fjóra keppnisflokka:

  • Vinnustaðakeppni frá 2. febrúar ? 22. febrúar, fyrir 16 ára og eldri 
  • Framhaldsskólakeppni frá 2. febrúar ? 15. febrúar, fyrir 16 ára og eldri 
  • Grunnskólakeppni frá 2. febrúar? 15. febrúar, fyrir 15 ára og yngri 
  • Einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið

Skráðu þig til leiks á lifshlaupid.is Skráningarferlið er einfalt og þægilegt en góðar leiðbeiningar má finna á síðunni.

Getum við bætt efni síðunnar?