Fara í efni

Laust starf við Íþróttamiðstöðina í Stykkishólmi

31.03.2022
Fréttir

Stykkishólmsbær óskar eftir kvenkyns starfsmanni til starfa í Íþróttamiðstöð Stykkishólmsbæjar frá og með 1.júlí 2022um er að ræða vaktavinnu í 100% starfshlutfalli.

Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, vera íslenskumælandi og hafa ríkulega þjónustulund og góða hæfni í mannlegum samskiptum. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Kjalar starfsmannafélags.

Umsóknum skal skilað til Arnars forstöðumanns í Íþróttamiðstöðinni eða á netfang: sund@stykkishólmur.is, fyrir 18. apríl 2022. Nánari upplýsingar veitir Arnar á staðnum, í síma: 865- 6232 eða á netfang: sund@stykkisholmur.is

 
Getum við bætt efni síðunnar?