Laust starf í Ásbyrgi Stykkishólmi
Starf í Ásbyrgi, Stykkishólmi
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir starf í ?Ásbyrgi? í Stykkishólmi , sem er dagvinnustofa og atvinnutengd úrræði fólks með skerta starfsgetu.
Um er að ræða 100% stöðugildi, vinnutími virka daga kl. 8.00 ? 16.00.
Hæfnisviðmið: Rík samskipta- og samstarfshæfni.
Skriflegar umsóknir er tilgreini menntun, fyrri störf, umsagnaraðila og sakavottorð viðkomandi berist til Jóns Hauks Hilmarssonar, fagstjóra málefna fatlaðs fólks s. 430 7800 og 430 7811; jonhaukur@fssf.is sem veitir frekari upplýsingar um starfið.
Umsóknareyðublöð eru á heimasíðunni www.fssf.is
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga
Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ
Umsóknarfrestur er til 10. mars 2021
Forstöðumaður