Lausar stöður við Grunnskólann í Stykkishólmi
Lausar stöður við Grunnskólann í Stykkishólmi
Ein 100% staða stuðningsfulltrúa með langveiku barni frá7. september - vinnutími frá kl. 8:00 ? 16:00
Hæfniskröfur:
Aldurstakmark 20 ára
Áhugi á að vinna með börnum
Menntun sem nýtist í starfi
Krafist er íslenskukunnáttu
Hæfni í mannlegum samskiptum
Tölvulæsi
50% staða forfallakennara fram að áramótum
Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfi til þess að nota starfsheitið kennari
Leikni í mannlegum samskiptum og færni í að umgangast börn og unglinga
Skipulagshæfni, stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði
Faglegur metnaður
Í Grunnskólanum í Stykkishólmi eru 150 nemendur. Gleði ? samvinna ? sjálfstæðieru einkunnarorð skólans og störfum við eftir Uppeldi til ábyrgðar. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til að efla starfið enn frekar í þeim anda. Stykkishólmsbær eða ?Bærinn við eyjarnar? er 1200 manna bær á Snæfellsnesi með fallega náttúru og öflugt mannlíf. Í Stykkishólmi er vottað heilsueflandi vatn í sundlauginni.
Láttu Hólminn heilla þig!
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsness.
Umsókn um stöðurnar skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Fólk af öllum kynjum er hvatt til þess að sækja um.
Umsóknir skulu sendar á berglind@stykk.is. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Axelsdóttir skólastjóri í síma 433-8178/895-3828 eða á netfangið berglind@stykk.is.
Umsóknarfrestur er til og með 5. september 2021