Lausar stöður við Grunnskólann í Stykkishólmi
Lausar stöður við Grunnskólann í Stykkishólmi
Stöður kennara frá 1. ágúst 2022
40% tímabundin staða í dönsku
50% tímabundin staða í textíl
50% ótímabundin staða í heimilisfræði
50% staða náttúrufræðikennara
90% staða í list-, verkgreinum og sköpun
50% staða forfallakennara
60% staða yngsta stig
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Leyfi til þess að nota starfsheitið kennari
-
Leikni í mannlegum samskiptum og færni í að umgangast börn og unglinga
-
Skipulagshæfni, stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði
-
Faglegur metnaður
-
Áhugi og hæfni til að starfa í teymisvinnu
-
Góðir samskiptahæfileikar
100% ótímabundin staða skólaliða í þrifum og gæslu
Hæfniskröfur:
-
Aldurstakmark 20 ára
-
Áhugi á að vinna með börnum
-
Menntun sem nýtist í starfi
-
Krafist er íslenskukunnáttu
-
Hæfni í mannlegum samskiptum
-
Tölvulæsi
Í Grunnskólanum í Stykkishólmi eru 155 nemendur. Gleði ? samvinna ? sjálfstæði eru einkunnarorð skólans. Unnið er með leiðgsagnarnám og þurfa umsækjendur að vera tilbúnir til að efla starfið enn frekar í þeim anda. Stykkishólmsbær eða ?Bærinn við eyjarnar? er 1200 manna bær á Snæfellsnesi með fallega náttúru og öflugt mannlíf. Í Stykkishólmi er vottað heilsueflandi vatn í sundlauginni.
Láttu Hólminn heilla þig!
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Kennarasambands Íslands og Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsness.
Umsókn um stöðurnar skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Fólk af öllum kynjum er hvatt til þess að sækja um.
Umsóknir skulu sendar á berglind@stykk.is. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Axelsdóttir skólastjóri í síma 433-8178/895-3828 eða á netfangið berglind@stykk.is.
Umsóknarfrestur er til og með 12. maí 2022