Fara í efni

Lausar stöður í leikskólanum í Stykkishólmi

12.01.2022
Fréttir

Leikskólinn í Stykkishólmi auglýsir lausar stöður leikskólakennara frá 1. mars 2022.
Gerð er krafa um góða tölvu-og íslensku kunnáttu, færni í samskiptum er nauðsynleg og metnaður fyrir leikskólakennslu. Vakin er athygli á því að ef ekki fást leikskólakennarar til starfa, munu aðrar umsóknir koma til greina. Reynsla af uppeldis-og kennslustörfum með ungum börnum er æskileg. Athugið að starfið hentar bæði körlum og konum.
Allar nánari upplýsingar gefa Sigrún Þórsteinsdóttir leikskólastjóri og Elísabet Lára Björgvinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri á netfanginu leikskoli@stykkisholmur.is og í síma 4338128 og 8664535.

Einkunarorð leikskólans eru Virðing - Gleði - Kærleikur.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Stykkishólmsbæjaren einnig er hægt að sækja um á íbúagátt Stykkishólmsbæjar.
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2022. Öllum umsóknum verður svarað.

Getum við bætt efni síðunnar?