Fara í efni

Laus störf í leikskólanum í Stykkishólmi

19.02.2021
Fréttir
Virðing ? gleði ? kærleikur
Leikskólinn í Stykkishólmi auglýsir lausar stöður leikskólakennara eina frá 1. apríl og aðra frá 1. júní 2021. Einnig kemur til greina afleysingarstaða í sumar.
Gerð er krafa um góða tölvu-og íslensku kunnáttu, færni í samskiptum er nauðsynleg og metnaður fyrir leikskólakennslu. Vakin er athygli á því að ef ekki fást leikskólakennarar til starfa, munu aðrar umsóknir koma til greina. Reynsla af uppeldis-og kennslustörfum með ungum börnum er æskileg. Athugið að starfið hentar bæði körlum og konum.
Allar nánari upplýsingar gefa Sigrún Þórsteinsdóttir leikskólastjóri og Elísabet Lára Björgvinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri á netfanginu leikskoli@stykkisholmur.is og í síma 4338128
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Stykkishólmsbæjar og á vef bæjarins www.stykkisholmur.is
Umsóknarfrestur er til 12. mars 2021. Öllum umsóknum verður svarað.
Getum við bætt efni síðunnar?