Fara í efni

Landvörslunámskeið

08.12.2020
Fréttir

Landvarðarnámskeið Umhverfisstofnunar verður haldið í febrúar 2021. Starfsmenn stofnunarinnar hafa endurskipulagt námskeiðið með það að markmiði að geta kennt það óháð aðstæðum í samfélaginu. Námskeiðið í ár verður allt kennt í fjarnámi.
Kristín Ósk Jónasdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, sér um námskeiðið, undirbúning o.fl. ásamt kennurum sem koma að helstu þáttum námskeiðsins. Námskeiðið spannar 110 kennslustundir sem raðast niður á 4 vikur á tímabilinu 4. til  28. febrúar. Nemendur sem ljúka landvarðarnámskeiði ganga fyrir um landvarðastörf í þjóðgörðum og á öðrum friðlýstum svæðum. Umhverfisstofnun hefur yfirumsjón með námskeiðinu en kennarar koma jafnframt frá öðrum þjóðgörðum og víðar að.

Opnað verður fyrir umsóknir 4. janúar  2021. Hámarksfjöldi nemenda á landvarðarnámskeiði eru 32. Skráð er á námskeiðið eftir röð umsókna. Lágmarksfjöldi nemenda er 25 og fellur námskeiðið niður ef tilskilinn fjöldi næst ekki. Skráningafrestur er til 11. janúar 2021.

Allar nánari upplýsingar má finna á vef umhverfisstofnunar.

Getum við bætt efni síðunnar?