Fara í efni

Kvikmyndatökur í Stykkishólmi

31.05.2021
Fréttir

Dagana 1. og 2. júní nk. standa yfir tökur á atriði úr kvikmyndinni Woman at Sea í Stykkishólmi eins og fram hefur komið.

Þriðjudaginn 1. júní fara tökur fram frá kl. 06:00-16:00 við höfnina hjá ferjunni og má gera ráð fyrir að umferð verði takmörkuð um svæðið til kl. 13:00. Á milli kl. 14:00 - 15:30 verður tekið upp við Súgandiseyjarvita og munu kvikmyndaframleiðendur stýra umferð um eyjuna á meðan.

Miðvikudaginn 2. júní fara tökur fram við Skipavík frá kl. 16:00- 01:00 og má einnig gera ráð fyrir að umferð um höfnina og malarslóðann sunnan við Skipavík verði takmörkuð.

Getum við bætt efni síðunnar?