Fara í efni

Jólalestin verður á ferðinni í dag

14.12.2021
Fréttir

Jólalest Tónlistarskóla Stykkishólms ekur um bæinn  á milli kl. 17 og 18 í dag, þriðjudaginn 14. desember, og spilar á völdum stöðum til að gleðja gesti og gangandi með jólatónlist. Með í för verða jólasveinar með jólasleðann góða sem þeir afhentu bæjarbúum fyrir síðustu jól en nú er kominn tími til að koma honum fyrir á góðum stað til að gleðja bæjarbúa.

Gera má ráð fyrir að lestin fari víða og jólalög ómi um allan bæ.

Getum við bætt efni síðunnar?