Fara í efni

Jól og áramót á Dvalarheimilinu í Stykkishólmi

17.12.2020
Fréttir

Kæru ættingjar og vinir

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur Embætti landlæknis komið með ráðleggingar til hjúkrunarheimila landsins um  heimsóknarreglur um jól og áramót sem taka gildi frá og með deginum í dag. Eins og hjá öllum landsmönnum verður þessi jólahátíð nokkuð ólík því sem við eigum að venjast.
Heimsóknir á aðventunni og um hátíðarnar:

  • Heimilið er opið alla daga fyrir heimsóknir og 1-2 gestir geta komið í heimsókn hvern dag (saman eða í sitthvoru lagi)
  • Börn yngri en 18 ára eru velkomin en þau teljast annar af þessum tveimur gestum.
  • Gestir mega ekki dvelja í almennum rýmum, heldur eingöngu inni hjá íbúa.
  • Ekki er opið fyrir heimsóknir á matmálstímum, (á einnig við á aðfangadags- og jólakvöld).
  • Alfarið er mælst gegn því að íbúar fari í boð til ættingja á þessum tíma. Eftir slíkt boð þarf íbúi að fara í sóttkví með ættingja á hans heimili og sýnatöku að sóttkví lokinni áður en heimild er veitt til að koma aftur inn á hjúkrunarheimilið.
  • Gestur má ekki koma inn á hjúkrunarheimilið nema hafa sinnt eigin sóttvörnum í hvívetna.
  • Fólk sem kemur erlendis frá verður að hafa lokið sóttkví og neikvæð niðurstaða seinni sýnatöku þarf að liggja fyrir. Gott er að láta 3 daga líða til viðbótar áður en komið er inn á hjúkrunarheimili.
  • Stjórnandi heimilisins getur veitt undanþágu frá þessum reglum við mikil veikindi eða sambærileg atvik.

Starfsfólk Dvalarheimilisins óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og þökkum ykkur kærlega fyrir góða samvinnu og skilning á þessum undarlegu tímum.

Getum við bætt efni síðunnar?