Influensubólusetning á Heilsugæslunni í Stykkishólmi
Öllum er velkomið að mæta í bólusetningu en hvorki þarf að boða komu né bóka tíma. Forgangshópar skv. skilgreiningu Landlæknis eru sérstaklega hvattir til að þiggja bólusetningu: Þessir hópar fá bóluefnið frítt en borga komugjald, 500 kr., nema eldri borgarar og öryrkjar sem eru undanþegnir komugjaldi. Þeir sem eru yngri en 60 ára og tilheyra ekki áhættuhópum skv. skilgreiningu landlæknis borga bæði komugjald , 500 kr. og bóluefnið (Vaxigrip Tetra) sem kostar nú 1.800 kr. Athugið:
Skjólstæðingar heimahjúkrunar og íbúar á hjúkrunarheimilum og íbúðum fyrir aldraða mun bjóðast að fá sína bólusetningu á heimilum sínum.
Til að flýta fyrir er gott að vera í stuttermabol eða skyrtu svo auðvelt sé að bera handlegg.
Að minnsta kosti fjórtán dagar þurfa að líða á milli bólusetningar gegn Covid-19 og inflúensubólusetningar.
Hægt er að lesa nánar um inflúensu hér.