Fara í efni

Íbúum um allt land býðst að njóta listagjafar næstu helgi

15.12.2020
Fréttir

Íbúum um allt land býðst að njóta listagjafar helgina 19.-20. desember nk. Listafólk í fremstu röð mun þá sækja fólk heim og flytja stutta listgjörninga, tónlist, ljóðlist, sirkusatriði eða dans sem gefendur geta pantað fyrir ástvini í gegnum vefinn. Einnig verður boðið upp á rafrænar listagjafir til þeirra sem geta ekki tekið á móti gjöf í eigin persónu vegna sóttvarnatilmæla eða staðsetningar.
Verkefni þetta er unnið í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík og kemur í framhaldi af viðbragðsverkefni þeirra Listagjöf sem vakti mikla lukku í Reykjavíkurborg í byrjun nóvember. Áætlað er að hið minnsta 100 listamenn muni að þessu sinni dreifa allt að 750 listagjöfum á tugi áfangastaða um land allt.

Gjöfin er án endurgjalds en takmarkast við eina pöntun á mann. Hver listagjöf er um það bil fimm til tíu mínútna flutningur á t.d. tónlist, dansi eða ljóðalestri. Sá eða sú sem bókar gjöfina sér til þess að viðtakandinn verði heima þegar gjöfin verður afhent og tekur að auki á móti listamanninum. Flutningurinn fer svo fram í öruggri covid-fjarlægð frá þiggjanda gjafarinnar, utandyra ef þess er nokkur kostur eða annars staðar þar sem hægt er að tryggja örugga fjarlægð.
Ath. Þangað sem listafólk kemst ekki í eigin persónu eða til þeirra sem treysta sér ekki til að taka á móti listafólki heim að dyrum verður í boði að panta listagjafir sem persónulegt myndsímtal.

Hægt er að panta listagjöf á listagjof.listahatid.is, en þar má einnig finna nánari upplýsingar.

Getum við bætt efni síðunnar?