Fara í efni

Íbúafundir um sameiningarviðræður

14.03.2022
Fréttir

Boðað er til íbúafunda til kynningar á tillögu samstarfsnefndar um sameiningu Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar, sem kosið verður um þann 26. mars næstkomandi. Fundunum verður einnig streymt á fésbókarsíðu verkefnisins. Íbúar eru hvattir til þess að mæta á fundina og kynna sér álit samstarfsnefndar og kynningarefni.
Íbúafundir verða haldnir mánudaginn 14. mars á eftirfarandi stöðum:

  • Stykkishólmskirkja  kl. 17:30
  • Félagsheimilið Skjöldur kl. 20:00

Þátttakendur í fundarsal og þeir sem fylgjast með rafrænt geta sent spurningar til samstarfsnefndar í gegnum samráðsforritið menti.com og einnig verður hægt að koma ábendingum og fyrirspurnum á framfæri í fundarsal.
Á menti.com er hægt að gefa spurningum annarra atkvæði til að færa þær framar í röðinni eða skrá inn nýja spurningu. Einnig verður boðið upp á hnitmiðaðar spurningar úr sal.

Getum við bætt efni síðunnar?