Fara í efni

Hjólað í vinnuna 2022

04.05.2022
Fréttir

Vinnustaðakeppnin Hjólað í vinnuna 2022 hófst í tuttugasta sinn nú í dag, en að þessu sinni fer keppnin fram frá 4. - 24. maí. Opnað var fyrir skráningu þann 20. apríl. Hægt er að skrá sig allan tímann á meðan keppni stendur yfir eða fram til 24. maí. Hjólað í vinnuna er fyrir marga vorboðinn ljúfi og ávalt mikilvægat að huga vel að heilsunni og sinni daglegu hreyfingu. Fyrirtæki og stofnanir eru nú hvött til að skrá vinnustaðinn til leiks og hvetja þannig allt starfsfólk til að vera með. Nauðsynlegt er fyrir vinnustaði landsins að huga vel að starfsandanum og er verkefnið góð leið til þess að hressa upp á stemninguna og þjappa hópnum saman. 

Markmið verkefnisins er að huga að daglegri hreyfingu ásamt því að vekja athygli á virkum ferðamáta og eru hjólreiðar bæði virkur og umhverfisvænn ferðamáti. Hjólreiðar eru frábær útivist, hreyfing og líkamsrækt. Með því að taka þátt í þessu verkefni er ekki einungis verið að bæta skemmtilegri hreyfingu inn í sitt daglega líf, heldur lækkar maður kolefnissporin í leiðinni og sparar peninga sem færu annars í eldsneyti.

Hægt er að skrá sig til leiks hér.

 
Getum við bætt efni síðunnar?