Fara í efni

Heilsuefling 60+

25.02.2021
Fréttir

Heilsuefling 60+

Æfingar hefjast þriðjudaginn 2. mars kl. 9:00 í sal Íþróttamiðstöðvar

 Þriðjudagur  Miðvikudagur  Fimmtudagur  Föstudagur  9:00 - 10:00  10:00 - 11:00  12:30 - 13:30  10:00 - 11:0  Íþróttamiðstöð  Átak - Líkamsrækt  Íþróttamiðstöð  Átak - Líkamsrækt Hópatími með þjálfara   Tími með þjálfara   Hópatími með þjálfara  Tími með þjálfara  

 

Heilsuefling 60+ er hreyfing ætluð íbúum 60 ára og eldri. 
Boðið er upp á fjölþætta heilsurækt þar sem hver og einn fer á sínum hraða.
Leiðbeinendur eru eins og áður Gunnhildur Gunnarsdóttir, Sigríður Bjarney Guðnadóttir og Gísli Pálsson.
Þátttökugjald er kr. 4.000.- fyrir einstakling á mánuði og kr. 7.000.- fyrir hjón.
 
Skráning í netfangið magnus@stykkisholmur.is eða í síma 8648862.
 

Grímuskylda inn í húsið, sótthreinsun og 2 metra reglan í hávegum höfð.

Sá sem hreyfir sig reglulega fær í kaupbæti:

Sjálfstæði ? möguleikan á að búa heima sem lengst.
Vellíðan ? umframorku til þess að takast á við gráan hversdagsleikann.
Félagsskap ? utandyra eða innan.
Tengsl við æskuna ? aukinn þrótt til þess að njóta samveru við börn og barnabörn.
Ferðagleði ? er nægilega hraustur til þess að fara í langferðir.
Nýtur náttúrunnar ? getur ferðast um fjöll og firnindi.
Sefur vel ? fær hraustlegt og gott útlit.
 
Getum við bætt efni síðunnar?