Fara í efni

Framkvæmdaáætlun Snæfellsness 2021-2025

25.02.2021
Fréttir

Framkvæmdaáætlun 2021-2025

Framkvæmdaáætlun Snæfellsness 2021-2025 vegna umhverfisvottunar sveitarfélaganna fimm hefur verið birt. Framkvæmdaáætlunin tekur m.a. mið af frammistöðu síðastliðinna ára og svæðisbundnum áhættuþáttum. Skjalið er eitt af því sem leggur grunninn að umhverfisvottunarverkefni Snæfellsness og er lýsing á helstu umhverfis- og samfélagstengdum verkefnum sveitarfélaganna næstu fimm ára.
Meðal verkefna sem umhverfisvottun Snæfellsness stefnir á að ráðast í árið 2021 eru strandhreinsun, myndun loftslagsstefnu samkvæmt breyttum lögum um loftslagsmál, aukin fræðsla um sorpmál o.fl. Sveitarfélögin eru með fjölbreytt verkefni á sinni dagskrá sem bæði auka lífsgæði íbúa og gesta á Snæfellsnesi og bera hag umhverfisins að leiðarljósi. Þar má nefna orkuskipti, bætt aðgengi að áningastöðum og aukin skógrækt.
Íbúar og hagsmunaaðilar Snæfellsness eru hvattir til þess að kynna sér framkvæmdaáætlunina, hana má nálgast hér.
 
Frétt frá Umhverfisvottun Snæfellsness
 
Getum við bætt efni síðunnar?