Fara í efni

Faraldurinn í rénun ? COVID-19 staðan í Stykkishólmi í dag, miðvikudag

19.01.2022
Fréttir

Samkvæmt upplýsingum umdæmislæknis sóttvarna í dag, miðvikudaginn 19. janúar, eru nú 18  í einangrun með virk smit og 27 í sóttkví í Stykkishólmi og nágrenni en umtalsverður fjöldi losnaði úr sóttkví í dag.
Í morgun var var aðeins eitt PCR próf tekið á heilsugæslunni í Stykkishólmi  og má því ætla að útbreiðslan sé í rénun í Stykkishólmi.
Íbúum er bent á að sýna áfram fyllstu aðgát og huga að persónubundnum sóttvörnum. Upplýst verður um stöðuna eftir þörfum. Allar helstu upplýsingar má finna á covid.is

 
Getum við bætt efni síðunnar?