Fara í efni

Auglýsing um álagningu fasteignagjalda hjá Stykkishólmsbæ 2022

28.01.2022
Fréttir

Álagningarseðlar fasteignagjalda fyrir árið 2022 verða ekki sendir út á pappír, heldur munu þeir verða aðgengilegir rafrænt í gegnum www.island.is Ef óskað er eftir því að fá álagningaseðil sendan, vinsamlega hafið samband við Þór Örn bæjarritara í 433-8100 eða netfangið thor@stykkisholmur.is

Greiðsluseðlar verða heldur ekki sendir út á pappír, nema þess sé sérstaklega óskað. Það má benda íbúum Stykkishólmsbæjar á íbúagattina á heimasíðunni www.stykkisholmur.is, þar geta íbúar nálgast alla sína reikninga frá bænum,  ef óskað er eftir því að fá senda greiðsluseðla vinsamlega hafið samband í síma 433-8100 eða netfangið thor@stykkisholmur.is

Gjalddagar fasteignagjalda verða níu á árinu 2022 eftirtaldir: 1. febrúar, 1. mars, 1.apríl, 1. maí, 1. júní, 1. júlí, 1. ágúst, 1. september og 1. október.

Lækkun fasteignaskatts á íbúðum elli- og örorkulífeyrisþega er reiknuð við álagningu fasteignagjalda. Afslátturinn er hlutfallslegur að teknu tilliti til allra skattskyldra tekna skv. skattframtali. Reglur um afslátt er með eftirfarandi hætti:
 Einstaklingar með tekjubil  0-4.049.627 kr   Fá 100% afslátt.  Einstaklingar með tekjubil   4.049.628-4.449.691 kr.  Fá 75% afslátt  Einstaklingar með tekjubil  4.449.692-4.884.291  kr.  Fá 50% afslátt  Einstaklingar með tekjubil  4.884.292-5.296.762  kr.  Fá 25% afslátt  Einstaklingar með tekjubil  5.296.763 kr.og hærra  Fá 0%   afslátt

 

Hjón/sambúðarfólk með tekjubil    0-6.841.909 kr.  Fá 100% afslátt  Hjón/sambúðarfólk með tekjubil   6.841.910-7.248.097 kr.  Fá  75% afslátt  Hjón/sambúðarfólk með tekjubil   7.248.098-7.678.776 kr.  Fá  50% afslátt  Hjón/sambúðarfólk með tekjubil   7.678.777-8.072.717 kr.  Fá   25% afslátt  Hjón/sambúðarfólk með tekjubil   8.072.718 kr. og hærra  Fá     0% afslátt

 

Hámarksafsláttur af fasteignaskatti verður ekki hærri en 102.700 kr.
Ekki er þörf á að sækja sérstaklega um þennan afslátt.

Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið thor@stykkisholmur.is eða hringja í síma 433-8100

Getum við bætt efni síðunnar?