Auglýsing - Samþykkt deiliskipulag fyrir Súgandisey í Stykkishólmsbæ
Bæjarstjórn Stykkishólms samþykkti þann 24. febrúar, 2022 tillögu að deiliskipulagi fyrir Súgandisey í Stykkishólmi. Tillagan var auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 21. desember til og með 4. febrúar 2022. Athugasemdir sem bárust gáfu ekki tilefni til breytinga á tillögunni og hefur hún nú verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Deiliskipulagið má finna á heimasíðu Stykkishólms. Hægt er að kæra samþykkt bæjarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.