Fara í efni

Átakið G-vítamín: Frítt á söfn miðvikudaginn 10. febrúar

09.02.2021
Fréttir

Fáðu þér G-Vítamín!                                      

Geðhjálp stendur fyrir átakinu G-Vítamín á þorra þar sem verndandi þáttum geðheilsu er gefinn gaumur. Alla daga þorrans er bent á eina aðgerð á dag sem nota má sem G-vítamín.

Frítt inn á valin söfn í samstarfi við sveitarfélög um land allt miðvikudaginn 10. febrúar.

Miðvikudaginn 10. febrúar er G-vítamín dagsins að ?Gleyma sér?. Því er tilvalið að fara á
safn sem er góð leið til að gleyma sér og njóta menningar og listar í leiðinni.
Endilega nýtið tækifærið, ef ekki á þeim degi, þá þegar hentar. Það er verðmætt að leyfa
sér að gleyma sér. Frekari upplýsingar um söfn sem taka þátt er að finna á gvitamin.is. Það þarf ekki
að skrá sig til að fá aðgang að söfnunum.

Viltu meira G-Vítamín?
Á gvitamin.is er hægt að skrá sig og fá heilræði dagsins send í tölvupósti allan þorrann ásamt
möguleika á fjöldanum öllum af geðbætandi vinningum sem dregnir eru út daglega.

 

Söfn í Stykkishólmi

Bæði Norska húsið og Vatnasafn verða opin á morgun kl. 14-16.

Bent er á að kóði á Vatnasafn fæst afhentur í Norska húsinu.

Getum við bætt efni síðunnar?